Félag löggiltra endurskoðenda - FLE

Félag löggiltra endurskoðenda - FLE

Share

Fagfélag endurskoðenda FLE er til húsa á Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík. Tölvupóstfang er [email protected] og síminn er 568 8118.

Photos from Félag löggiltra endurskoðenda - FLE's post 03/07/2026

Endurskoðunardagur FLE var haldinn í salnum Háteig á Grand hótel þann 22. maí sl.

Eelco van der Enden, framkvæmdastjóri Evrópusamtakanna Accountancy Europe, var í streymi og sagði okkur frá starfsemi samtakanna, helstu verkefnum sem eru fram undan og stefnumótun fyrir næstu ár.

Jón Arnar Baldurs, Árni V. Claessen og Margret G. Flóvenz fjölluðu um menntun endurskoðenda á víðum grundvelli. Skoðað var núverandi lagaumhverfi, fjallað um meistaranámið í háskólunum tveimur og þjálfunina á stofunum. Einnig var fjallað um löggildingarprófið, niðurstöður síðasta árs og breytingar fram undan. Þá var rætt um endurmenntun endurskoðenda og eftirlit með löggildingu þeirra. Loks var farið stuttlega yfir menntun endurskoðenda í nágrannalöndunum. Að þessu loknu var efnt til umræðna meðal fundarmanna og safnað tillögum þeirra um það sem betur mætti fara varðandi menntun endurskoðunarstéttarinnar og fengum við marga góða punkta til að vinna með.

Friðrik Einarsson, endurskoðandi hjá KPMG, sagði frá því hvernig notkun gervigreindar hefur haft áhrif á endurskoðun ársreikninga, hvernig hún hefur breytt verklagi á síðustu misserum, hver líkleg þróun sé í notkun í framtíðinni og hverjar eru helstu hindranir og hættur við notkun á henni.

Harpa Theodórsdóttir, staðgengill skrifstofustjóra í atvinnuvegaráðuneytinu, sagði frá frumvarpi til breytinga á lögum um ársreikninga sem nú liggur fyrir Alþingi og verður væntanlega að lögum nú á vorþingi, vinnuhópi um endurskoðun á lögum um bókhald og fyrirhugaðri innleiðingu á sjálfbærniregluverki Evrópusambandsins.

Takk öll fyrir komuna!

Photos from Félag löggiltra endurskoðenda - FLE's post 03/07/2026

Þann 13. maí sl. endurtókum við leikinn og mættum þriðja árið í röð í Reykjadal ásamt góðum hópi félagsmanna FLE og annarra starfsmanna á þeirra vinnustöðum.

Gló Reykjadalur eru sumarbúðir í Mosfellsdal fyrir fötluð börn og ungmenni. Árlega koma um 250 einstaklingar í Reykjadal á aldrinum 8-21 árs. Þar er haft að leiðarljósi að ekkert sé ómögulegt og ævintýrin látin gerast.

Við fengum fjölbreytt verkefni, eins og að fegra aðeins útisvæðið, bárum á pallinn og útihúsgögnin, máluðum nýja þrautabraut, sópuðum lóðina, tíndum rusl, þrifum gluggana, tæmdum heilt starfsmannahús o.fl.

Í hádeginu mætti matarvagninn frá Hamborgarabúllunni og sá til þess að það væri enginn orkulaus í þessu verkefni.

Það er alltaf jafn skemmtilegt að fá að taka þátt í þessu verkefni með Reykjadal og erum við farin að telja niður dagana í heimsóknina til þeirra næsta vor!

Viðbrögð atvinnuvegaráðuneytisins við umsögnum um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga 15/05/2026

Minnisblað með viðbrögðum atvinnuvegaráðuneytisins við innsendum umsögnum hefur nú verið birt. Minnisblaðið var skrifað að beiðni efnahags- og viðskiptanefndar sem óskaði eftir afstöðu ráðuneytisins til þeirra athugasemda í umsögnum um málið sem ráðuneytið teldi þörf á að bregðast við. Sjá nánar í frétt á heimasíðu FLE 👇

Viðbrögð atvinnuvegaráðuneytisins við umsögnum um frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga Sem kunnugt er liggur nú fyrir Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um ársreikninga nr. 3/2006 sem varðar ...

Starfstími áritunarendurskoðanda hjá einingum tengdum almannahagsmunum 12/05/2026

FLE barst á dögunum svar við fyrirspurn sem félagið sendi endurskoðendaráði þar sem óskað var eftir áliti ráðsins á því frá hvaða tímapunkti eigi að telja regluna um að skipta eigi um áritunarendurskoðanda á sjö ára fresti, sbr. reglugerð 537/2014 um sérstakar kröfur í tengslum við lögboðna endurskoðun á einingum tengdum almannahagsmunum, þegar svo háttar til að félag verður eining tengd almannahagsmunum í fyrsta sinn og kýs að hafa sama endurskoðanda og áður.
Sjá nánar í frétt á heimasíðu FLE:

Starfstími áritunarendurskoðanda hjá einingum tengdum almannahagsmunum FLE barst á dögunum svar við fyrirspurn sem félagið sendi endurskoðendaráði þar sem óskað var eftir áliti ráðsins á því frá hvaða tímapunkti eigi að telja

Lagafrumvarp og umsagnir vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um ársreikninga 09/04/2026

Í febrúar voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ársreikninga birt í samráðsgátt. Breytingarnar varða stærðarmörk félaga, endurskoðunarmörk, skilafresti og fleira. Níu umsagnir bárust um frumvarpsdrögin.

Eftir yfirferð umsagna og breytingar á frumvarpinu var það svo lagt fram á Alþingi. Hægt var að senda inn umsagnir um frumvarpið og lauk fresti til þess 8. apríl. Níu umsagnir bárust um lagafrumvarpið, þar á meðal umsögn frá álitsnefnd FLE.

Sjá nánar í frétt hjá FLE:

Lagafrumvarp og umsagnir vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um ársreikninga Í febrúar voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um ársreikninga birt í samráðsgátt ...

Photos from Félag löggiltra endurskoðenda - FLE's post 27/02/2026

Skattadagur FLE var haldinn í lok janúar í salnum Háteig á Grand hóteli.

Elín Hanna Pétursdóttir, formaður FLE setti ráðstefnuna og afhentu þau Unnar og Elín blómvendi til þeirra endurskoðenda sem hlutu löggildingu í desember sl.

Stefán Skjaldarson, sviðsstjóri álagningarsviðs Skattsins, fór yfir það sem er efst á baugi hjá ríkisskattstjóra.

Guðbjörg Þorsteinsdóttir, lögmaður hjá Deloitte, fjallaði um samspil skatta og reikningshalds.

Jóhannes Eiríksson, stofnandi og framkvæmdastjóri Lagavita, spurði hvort að gervigreindin geti orðið leikbreytir í störfum endurskoðenda?

Guðrún Björg Bragadóttir, KPMG, fjallaði um nýlegar skattalagabreytingar.

Ráðstefnustjóri var Ágústa Katrín Guðmundsdóttir, endurskoðandi.

Takk fyrir að taka þátt í þessum skemmtilega degi með okkur!

Umsagnir vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um ársreikninga 23/02/2026

Níu umsagnir bárust vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um ársreikninga en umsagnarfrestur rann út 20. febrúar sl. Breytingarnar varða stærðarmörk félaga, endurskoðunarmörk, skilafresti og fleira eins og nánar má lesa um í frétt á heimasíðu FLE.

Umsagnir vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um ársreikninga Níu umsagnir bárust vegna fyrirhugaðra breytinga á lögum um ársreikninga en umsagnarfrestur ...

Áform um lagasetningu, umsagnir 02/02/2026

Þrjár umsagnir bárust vegna áformaskjals um lagasetningu sem varðar lög um ársreikninga en umsagnarfresti lauk í gær. Um fyrirhugaðar lagabreytingar má lesa nánar hér 👇

Áform um lagasetningu, umsagnir Þrjár umsagnir bárust vegna áformaskjals um lagasetningu sem varðar lög um ...

Samanburður á endurskoðunarmörkum í Evrópu 27/01/2026

Nú í janúar gáfu Evrópusamtökin Accountancy Europe út samantekt þar sem endurskoðunarmörk í 32 löndum í Evrópu eru borin saman og breytingar á mörkum frá árinu 2021 dregnar fram en það ár gáfu samtökin síðast út sambærilega samantekt. FLE er aðili að Accountancy Europe og Ísland er með í samanburðinum.

Samanburður á endurskoðunarmörkum í Evrópu Nú í janúar gáfu Evrópusamtökin Accountancy Europe út samantekt þar sem endurskoðunarmörk í 32 löndum í Evrópu eru borin saman og breytingar ...

Want your business to be the top-listed Accountant in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Suðurlandsbraut 6
Reykjavík
108