14/07/2026
Kæra Spesía áhugafólk,
Við óskum ykkur gleðilegs sumars og vonum innilega að þið séuð stödd í hitabylgjunni fyrir austan eða alls staðar annars staðar en í súldinni sem er að leika okkur Reykvíkinga grátt. Hér á skrifstofu Spesíu er þó lítið um sumarfrí þessa stundina því eins og þið vitið datt leyfi frá fjármálaeftirlitinu í hús undir lok síðasta mánaðar og nú er róið að því öllum árum að koma Spesíu í loftið.
Á fyrri myndinni má sjá tvo hugbúnaðarsérfræðinga við störf sín, þá Loga Eyjólfsson og Peter Short (sem á líka einmitt afmæli í dag). Sumir myndu halda að myndin sé uppstillt. Undir venjulegum kringumstæðum grúfa þeir sig yfir tölvuskjái sína með heyrnartól og eru þá oft í sambandi við þriðja hugbúnaðarteymis meðliminn, Tinnu Karen Gunnarsdóttur sem er með aðsetur í Svíþjóð. Þessi mynd er þó ekki uppstillt, svona var aðkoman þar sem þeir ræddu saman um mikilvæga hluti sem tengjast bakendaforritun!
Seinni myndin er þó víst alveg örugglega uppstillt enda ætlað að ramma inn tímamótin sem fylgdu því þegar leyfið frá fjármálaeftirlitinu datt í hús. Leyfið er ekki aðeins hugmynd sem flýtur um í skýinu eins og flestir gjörningar samtímans, heldur alvöru bréf, leyfisbréf. Það bankaði upp á sendill frá Seðlabankanum líkt og árið væri 1960. Bergur Ebbi hljóp beina leið út í Jysk og keypti ramma á 890 kr. (við erum fjármálafyrirtæki sem sparar) og voilá. Innrammað leyfi, sem hér má sjá í höndum aðalstofnenda Spesíu Tómasar Gestssonar og Georgs Lúðvíkssonar. Stoltir menn.
Allt á fullu hjá Spesíu og kerfið verður brátt tilbúið í prufukeyrslu og þið sem eruð á biðlistanum verðið að sjálfsögðu þau fyrstu sem munu fá boð um það.
Kær kveðja af Grandanum
Show translation
29/06/2026
Við færum ykkur frábærar fréttir!
Eftir eins og hálfs árs umsóknarferli hefur Seðlabanki Íslands tilkynnt okkur að fyrirtækið hafi hlotið starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu. Fréttirnar eru þegar opinberar:
https://sedlabanki.is/frettir-og-utgefid-efni/grein/spesia-eignastyring-hf-faer-starfsleyfi-sem-rekstraradili-serhaefdra-sjoda
Þetta þýðir að nú er okkur heimilt að fara í loftið!
Um er að ræða afrakstur gríðarlegrar vinnu sem mun margborga sig til framtíðar. Þegar hugmyndin að Spesíu var sett niður fyrir rúmum tveimur árum voru margir utanaðkomandi sem bentu á að auðveldast væri að einbeita sér að hugbúnaðarlausninni en láta aðra sjá um rekstur sjóðanna því það væri ekki fyrir hvern sem er að fá starfsleyfi Fjármálaeftirlitsins. Allt frá fyrstu stundu vissum við að það kæmi aldrei til greina. Að sjálfsögðu viljum við hafa okkar eigið starfsleyfi og fækka þannig milliliðum og lækka kostnað.
Spesía ætlar sér stóra hluti á íslenskum fjármálamarkaði og hluti þess felst í því að vera við fulla stjórn í öllum þáttum starfseminnar, þar á meðal rekstri sjóðanna og utanumhaldinu sem því fylgir. Spesía vill ekki bara vera vörumerki og hugbúnaður sem reiðir sig á önnur fjármálafyrirtæki. Spesía ætlar sér að byggja upp nýja hugsun frá grunni og þetta starfsleyfi er mikilvægur þáttur í því ferli.
Við erum mjög stolt af þessum árangri, enda er vinnan að baki starfsleyfi mikil og lærdómsrík. Það er gott að vita til þess að á Íslandi starfi virkt eftirlit með fjármálafyrirtækjum. Leyfið er háð ítarlegum lagaskilyrðum auk þess sem sýna þarf fram á trausta ferla, öryggisáætlanir, þekkingu og aðlögunarhæfni. Starfsleyfið er því langt frá því að vera formsatriði heldur grundvöllur þess trausts sem fjármálafyrirtæki þurfa að búa yfir til að ná árangri til framtíðar.
Það sem gerist næst er að sjóðir Spesíu munu nú taka til starfa og framundan er tími prófana og greininga. Það eru einhverjar vikur í að við förum að bjóða fólki aðgang að þjónustunni af biðlistanum, en við biðjum ykkur um að fylgjast vel með. Þjónustan mun svo verða rækilega kynnt fyrir almenningi að loknu sumrinu og við vonumst eftir hjálp frá ykkur til að láta orðið berast.
Við kunnum Fjármálaeftirlitinu bestu þakkir fyrir gott samstarf og hlökkum til áframhaldsins. Þá viljum við þakka ykkur kæra Spesíu áhugafólk fyrir sýnda biðlund. Það gleður okkur mjög að geta loksins flutt ykkur þessar ánægjulegu fregnir.
Kær kveðja af Grandanum
Spesíu-teymið
Spesía eignastýring hf. fær starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða26. júní 2026
Hinn 25. júní 2026 veitti fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands Spesíu eignastýringu hf. starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða samkvæmt lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
10/06/2026
Hugtak vikunnar er verðbréfasjóður 💡
Eins og vitur maður sagði hér um árið, það er ekki alltaf spurning um að finna nálina í heystakknum – stundum er betra að eiga bara allan heystakkinn 🌾
Það eru ekki allir sem hafa tíma, þekkingu eða áhuga á að velja einstök hlutabréf og skuldabréf.
Þar koma verðbréfasjóðir til sögunnar.
04/06/2026
Hugtak vikunnar er vísitölusjóður 🎯
Margir fjárfestar borga hærri gjöld í þeirri von að sigra markaðinn.
Vandamálið er bara að fjármálamarkaðir eru erfiðir viðureignar, eðlilega.
Í krafti einfaldleikans hafa vísitölusjóðir ekki aðeins reynst ódýrari kostur. Oftar en ekki hafa þeir einnig skilað fjárfestum betri ávöxtun!
26/05/2026
"Kauphöllin er græn í dag" en hvað þýðir það eiginlega?
Þá er yfirleitt verið að vísa til markaðsvísitalna 💡
Ef vísitalan hækkar er markaðurinn grænn 🟢
En ef hún lækkar er hann oft sagður rauður 🔴
06/05/2026
"Íslenskir fjárfestar sjá bolamarkað fram undan" hljómar ein af fyrirsögnum viðskiptablaðsins þessa vikuna.
Samkvæmt könnun meðal markaðsaðila hérlendis sjá flestir hækkanir í kortunum 🧭